Dóru blogg
12.03.2007 01:50:02 / dora

Hætt

nýtt blogg www.dorajons.blogspot.com takk og bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 00:03:22 / dora

ví gaman

sá þetta á nokkrum síðum og þetta leit rosaleg skemmtilega út og þar sem eg hef ekkert betra að gera gerði eg þetta og viti menn! þetta var rosalega skemmtilegt :D IF YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE? So, here's how it works: 1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc) 2. Put it on shuffle 3. Press play 4. For every question, type the song that's playing 5. When you go to a new question, press the next button 6. Don't lie and try to pretend you're cool. Opening Credits: Creep - Radiohead Waking Up: Hjá þér – Sálin hans jóns míns… vil greinilega vakna einhversstaðar annarsstaðar First Day At School: Comfortably numb – pink floyd. Texti úr laginu: hello hello is anyone in there… tómlegur skoli… en frábært lag?Falling In Love: What I would say in your funeral – Mugison… gott að plana þetta um leið og við verðum ástfangin ha… Fight Song: Under pressure – David Bowie og Queen.. hehe Breaking Up: Blue Monday – New order.. jáá Prom: Love song – tori amos… greinilega vangað á þessu promi.. Getting Back Together : Lurgee – Radiohead Wedding: maloney wants a drin – já þetta er svona írskt drykkjulag eða eitthvað… fiðlur og banjo og svona stemmning.. haha hef aldrei heyrt þetta áður Birth of Child: Spánskur dúett í breiðholti - Bubbi Final Battle: let it be – the beatles. Death Scene: sem aldrei fyrr - bubbi Funeral Song: Fire – Scooter… jáá einmitt það sem ég vildi hafa í jarðarförini minni. End Credits: slá ég gegn – stuðmenn.. já kominn tími til.. já án efa góð mynd þetta.. vantar bara leikstjora og leikara og framleiðanda og já allt nema tónlist... fór heim um helgina, í fyrsta skipti sem ég gisti heima siðan skólinn byrjaði. Er greinilega svona upptekin manneskja. veit ekki hvað ég á að gera af mér... bless

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:03:13 / dora

.

heyrðu jájá ég skal blogga.

Ég ætla að byrja á því að óska afmælisbörnum síðustu daga til hamingju með afmælin: 2. okt Heiða
4.okt  Þór
5. okt Lilja Unnur
7. okt Unnur
8. okt Bryndís

í tilefni 18 ára afmæli Unnar og Bryndísar var að sjálfsögðu farið í Sjallann á DJ Pál Óskar. Palli klikkaði að sjálfsögðu ekki og skemmti ég mér alveg konunglega! dansaði og dansaði heilan helling, þrátt fyrir erfiðleika vegna plássleysis..

Annars var ég að vinna líka um helgina á greifanum, mjög fínt að vinna þar, er að vinna aðra hverja helgi og alla miðvikudaga.. þannig að allir koma út að borða!

en þarf að gera sálfræði verkefni.. bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 16:29:39 / dora

helgin

sumarið búið og komið haust. skólinn byrjaður og ég flutt inn a ak það er nu bara fínt, var orðin pínu þreytt á hótel gíg en fer líklega að sakna þess að vinna þar fljótlega.

það er sko heldur betur búið að vera gaman síðan ég kom til ak síðasta mið, Anna sæta nýlega komin með bílpróf og bíl þannig að hún er alltaf til í að vera driver.

á fimmtudaginn fórum við fínt út að borða ég bryndis anna og metta í tilefni þess að metta og anna áttu báðar nýlega afmæli. klæddum okkur upp í fína kjóla og borðuðum góðan mat og greifanum, agalega gaman og gott. fórum svo á rúntinn og á kránna þar sem ég var að bjóða metta á barinn og sjálfri mér auðvitað, mikið stuð það kvöld fyrir utan smá leiðinda vesen sem vonandi reddaðist hehe

á föstudaginn fór ég í bekkjarpartý út í sveit hjá fyrrverandi 1.E en það er bekkurinn sem anna var í í fyrra og ég þekkti því ekki marga, en skemmti mér þó nokkuð vel. fór með önnur loga og sóley. fórum svo á karó þar sem ég hitti Dönu og Ragga sem ég var að vinna með á gíg, gaman að hitta þau. svo var farið á kaffi ak og dansað þangað til heimskir strákar notuðu dansgólfið til að slást

á laugardaginn brunuðu ég metta bryndís og anna austur í kelduhverfi í bústaðinn sultir sem fjölskylda önnu á. bryndís hélt uppi stemmningu með lélegum bröndurum og freðnum pælingum. hvernig færum við að án hennar ;) vorum rétt komnar á staðin, bunar að opna húsið og taka úr lás og ákváðum að rölta yfir í hlöðu sem er þarna því þar er hægt að halda hlöðuball okkur fannst það svo merkilegt, komumst að því að við gátum ekki haft ball því það var fullt af drasli þar inni og röltum aftur til baka. en nei nei var ekki hurðin læst og lyklarnir inni.... haha það var geggjað fyndið við vorum læstar úti, að drepast úr hungri og svona og skítkalt. en sem betur fer var eitthvað fólk í bústað rétt hjá sem áttu lykil að húsinu. hehe en þetta var samt ekki okkur að kenna því þessi lás var eitthvað bilaður, fór alltaf aftur í lás þó við tækjum hann úr lás, þannig að við geymdum bara lykilinn fyrir utan.     
svo grillaði grillmeistarinn dóra rosalega gott svín og kjúkling og bryndís gerði glæsilegt meðlæti og anna og metta horfðu á ;) en þetta var rosa gott
vinir önnu frá húsavík komu svo seinna og sögðu að það væri réttarball í skúlagarði og auðvitað fórum við þangað, ótrúlega skemmtilegt ball, Danshljómsveit friðjóns var að spila og við dönsuðum og dönsuðum allt ballið, hristum all svakalega upp í stemmningunni þarna og lækkuðum meðalaldurinn um 20 ár.. hehe. voru einhverjir sætir svíar þarna dansaði eitthvað við þá en var ekki jafn vingjarnleg og anna hehe :P
æi vá hvað þetta var gaman, anna á eftir að setja inn myndir af þessu á síðuna sína. frábærar myndir

núna er mánudagur er að fara að vinna á greifanum á morgun, verð að vinna þar með skóla í vetur, það verður vonandi gaman, svo í kvöld eru starfsmenn á gíg að fara út að borða saman á hótel kea, verður vonandi rosalega gaman þar.

lifið heil


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 22:59:56 / dora

sumar já

vá það er komin 17. júlí, sumarið verður búið áður en ég veit af. og ég er ekki búin að ná að geera margt ennþá..  en ég er búin að:

  • Vinna, vinna vinna.. á hótel gýg, búin að gefa örugglega mörg þúsund manns að éta. og brosa rosalega mikið til þeirra þó þeir séu leiðinlegir, haha það er helvíti fínt
  • djamma 16. og 17. júní á ak. það var helvíti gaman, hitti lilju sætu þar og djammaði með henni, það var geggjað gaman, fór meðal annars í sjallann á stuðmenn, mjög gaman
  • fór suður um síðustu helgi að heimsækja doppu, var svo heppin að hitta á aðal góðviðrisdagana í Reykjavík hingað til. við vorum því mest bara í sólbaði
  • drekka bjór í Selinu með Bryndísi og Ragga, mjög hresst
  • vera heima í sveitinn að leika við mikael og margréti litlu krúttin

hmm já thats about it held ég

þarf eiginlega að fara núna bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 14:39:13 / dora

:)

en hvað það er yndislegt að hafa sumar.. vinna og græða pening og svona..

búin að fá útúr öllum prófum: fékk 9 í stæ, sögu, ensku og lífsleikni, 8 í frönsku, félagsfræði, íþróttum og íslensku og svo 7 í dönsku.

ekki smá ánægð með þetta enda fór ég til ak í gær og keypti mér gallabuxur og skó til að verðlauna mig :D aldeilis gott að fá dreyfbílisstyrkinn til að eyða :D

annars gengur bara vel í vinnuni, líkar bara mjög vel við að þjóna frekum útlendingum.. hehe nei nei þeir eru ekki allir frekir, flestir mjög nice. ég og bryndís búum svo saman í pínulitlu herbergi, og erum nottlega með alltof mikið drasl þannig að það er ekkert pláss fyirr okkur.. en þetta er samt mjög fínt, þurfum hvort eð er ekki að gera neitt annað þarna en að sofa.

svo er ég ekki frá því að það verður mikið djammað 17. júní, er í fríi þá og þarf ekki að mæta í vinnu fyrr en kl 6 daginn eftir þannig að ég ætla sko að gera eitthvað sniðugt, er ekki fleiri til í það?

en bless


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 23:44:41 / dora

Loksins loksins

hið langþráða sumarfrí er loksins komið.

síðasta prófið af átta var í dag.. þvílíkur léttir. búin að fá nokkrar einkunnir.. enska og lífsleikni 9, íþróttir, íslenska og félagsfræði 8...   mjög ánægð með það. er núna bara að bíða eftir hinum..

þreif svo bara herbergið mitt í dag og skilaði því. er komin heim en stoppa ekki lengi því ég fer til Mývó á morgun á Hótel Gýg.  vonandi verður gaman þar í sumar.

En ég er að spá í að fara að sofa... dauðþreytt andlega og líkmlega.

góða nótt


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 17:23:41 / dora

Hard rock hallelujah!

ég held að það sé langt síðan ég var svona sátt með Eurovision og núna.  Lordi áttu svo sannarlega skilið að vinna, voru með lang besta lagið. mér finnst þetta lag verða skemmtilegra og skemmtilegra í hvert skipti sem ég heyri það. 

Rosalega sæt :D

Silvía hefði nú samt mátt komast í úrslit og Danmörk hefði mátt fá fleiri stig.

En annars er ég búin að vera heima um helgina að læra... prófin byrja næsta fös og það er nóg að læra.. er að fara í 8 próf sem er allt of mikið.

en bless


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 18:41:59 / dora

ammæli

jæja eitt afmælisblogg fyrir þig Bryndís :D

Gaman að segja frá því að ég er orðin 18 ára gömul, er orðin sjálfráða og fjárráða, má gifta mig og margt fleira.

en mer líður nú samt alveg eins og í gær. ótrúlegt en satt.

afmælisdagurinn byrjaði vel, Bryndís, Metta og Siggi komu til mín rétt eftir miðnætti með afmælisgjöf frá Bryndísi, Mettu og Önnu en Anna greyið er veik heima :( en já þær gáfu mér bland í poka úr body shop og jöru, púður, maskari, augnskuggi ofl. og svo eina hvíta rós. var ekki smá ánægð með þetta, frábærar þessar elskur :* takk takk krúttin min

svo fóru við fjórar líka út að borða í tilefni afmælisins á sun á strikið og þessi staður er heldur betur frábær, bryndís sagði þeim að ég ætti afmæli og við fengum allar æðislegan eftirrétt, súkkulaðusúffle með ís og jarðarberjum :D mæli eindregið með þessum stað :D

svo ætlar Eili bróðir að bjóða mér í pizzu í tilefni dagsins á eftir.. :D

bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 17:16:49 / dora

júhú

það er alveg að koma páskafrí :D bara þrír dagar, get ekki beðið. þá ætla ég að fara á Sigló að leika við Mikael og Margréti. Er komin með svo nett mikið leið af skólanum þannig þetta frí verður frábært.
gæti samt farið í menningarferð til Reykjavíkur um helgina en nenni því ekki og á ekki pening til þess að vera í stórborginni því þar er ekki hægt að vera án þess að eyða pening þó að ferðin sjálf sé mjög ódýr, svo gæti ég líka farið á gettu betur á fimmtudagskvöldið en ég bara nenni því alls ekki þó að þetta séu úrslitin, miklu þægilegra að horfa bara á þetta í sjónvarpinu held ég nú.

Annars hef ég ekki gert neitt fréttnæmt nýlega, búin að fara heim síðustu helgar, var veik í síðustu viku og svona  ómerkilegt.

3 lög sem eru í uppáhaldi þessa dagana

Playground love með hljómsveitinni Air er uppáhaldið þessa dagana og hefur verið það lengi.. vá hvað þetta er æðislegt lag, get hlustað á það aftur og aftur.

Scarborough fair með Simon&Garfunkel. rosalega flott lag... vá. er úr myndinni The Graduate..

og Nothing Compares með Stereophonics. flott lag í flottri útgáfu, upprunalega útgáfan er líka geggjað flott með Sinead O'Connor..

Mæli með þessum lögum

en ég þarf að gera lífsleikniritgerð.

bless


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 10:33:50 / dora

Klukk já

Þar sem Lilja, Jón og einhverjir fleiri eru búin að klukka mig fyrir löngu síðan þá verð ég að fara að koma þessu klukki inn

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Ferðaþjónustan Haga 1... mörg mörg sumur
Hótel Edda Neskaupsstað
Skipalækur
Leikskólinn Barnaborg.. 2-3 dagar hehe

Fjórar myndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Ace Ventura pet dedective
Dumb and dumber
Titanic
The devils advocate og margar fleiri.

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Hagi 1
Skarðshlíð 46
Lundur herb. 1102
Lundur herb. 109

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Sex and the city
Desperate houswifes
Lost
Simpson

Fjórar síður sem ég skoða daglega, fyrir utan blogg:
www.radioblogclub.com
www.b2.is
www.muninn.is
www.mbl.is


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Bretland
Vestmannaeyjar
Egilsstaðir
hmm já fleiri pleis á Íslandi.
   
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
Rjómatertur
Lambasteik með tilheyrandi
Grillaður matur
Svínasteik og nautasteik.
  
Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
Á Siglufirði
Upp í rúmi
Á hlýjum stað
Ekki í skólanum
   
Átta bloggarar sem ég klukka:
Held að allir séu búnir að gera þetta, ég er frekar sein...


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 17:20:28 / dora

bloggi

Jæja.. tölvan er ekki ennþá komin úr viðgerð en þar sem ég ákvað að fara útí skóla að gera ritgerð þá auðvitað nenni ég því ekki og ætla frekar að blogga smá..

ætla fyrst að segja hvað ég er dugleg, gellan keypti sér ræktarkort í gær og er búin að fara alveg tvisvar í ræktina síðan þá! og ætla mér að halda áfram að vera dugleg að fara þangað.. lýst ekkert á hvað ég er orðin rosalega löt, og í leiðinni ætla ég að reyna að hætta að borða nammi og drekka gos, (nema kannski á laugardögum) og hætta að kaupa mér hamborgara og pizzur.. mér finnst þetta alveg voðalega gott plan vona bara að mér takist að fara eftir því... 8|  ef einhverjir fleiri vilja koma í átak með mér þá að er það alveg frábært skemmtilegra en að standa í þessu ein.

Ratatoskur er í skólanum núna sem eru opnir dagar fyrir þá sem skilja ekki MA-mál. fór í dag á tvo fyrirlestra og í jóga og mér fannst jógað algjör snilld, væri alveg til í að fara að stunda það líka..

ójá í síðustu viku fóru félagsfræðibekkirnir á öðru ári í ferð austur (nema þeir sem nenntu ekki að fara, isspiss) og það var bara mjög gaman. fórum upp á kárahnjúka og skoðuðum virkjunina og döðruðum við kínverja og pólverja hehe ;) og svona stuð. gistum svo á neskaupsstað, hef ekki komið þangað síðan ég var að vinna þar í sumar, hitti Huldu gellu og fór á söngvakeppni VA... og borðaði morgunmat á gamla vinnustaðnum mínum hehe það var frekar skrýtið. við skoðuðum svo álverið á reyðarfirði og ég er nú ennþá föst á þeirri skoðun að þetta er allt saman rugl og vitleysa, er algjörlega á móti Álveri á Reyðafirði og ENNÞÁ meira á móti álveri á Húsavík.. nenni ekki að tala um það, bendi á síðuna www.doppaskoppa.blogspot.com ef þið viljið heyra í mótmælanda ;)

en best að fara að gera þessa blessuðu söguritgerð.. bless


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 21:43:45 / dora

biluð tölva

halló.. bara láta vita að ég er ekki dauð heldur er tölvan mín dauð.  sem er frekar ömurlegt..

litla frænka er orðin þriggja vikna og rosalega sæt. ég er bara í skólanum og já ekkert merkó...

varð bara að blogga fyrir lilju... geri allt fyrir þig kona ;)

þarf að læra fyrir stæ próf. bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 08:11:46 / dora

02.02.06

ÉG Á LITLA FRÆNKU :D :D :D

» 12 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 12:45:37 / dora

FRÍ :D

ahh yndislegt að vera í fríi og þurfa ekki að læra undir neitt próf. búin að fá allar einkunnir:

7 í fél og nátt mjög ánægð með það, 8 í ísl frönsku og Sögu!! ekki smá ánægð með að hafa náð 8 í sögu :D og svo 9 í íþróttum og ensku :D

Engin ástæða til annars en að vera ánægð með þetta :D

Ég er annars bara búin að vera heima að slappa af, ekki búin að eignast frænku eða frænda ennþá, er eitthvað að láta bíða eftir sér.

en já hef ekkert sérstakt að segja þannig að.. bless


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5